Diskótek Ó-Dollý! Ferða-diskótek og karókí.
DISKÓTEKIÐ Ó-DOLLÝ! DISKÓTEK Ó-DOLLÝ ER FULLKOMIÐ FERÐA-DISKÓTEK; DISKÓTEK, KARÓKÍ OG LJÓSASHOW.
 

DISKÓTEK Á HEIMSMÆLIKVARÐA

 LIFANDI FERÐADISKÓTEK.

   

           

 

MIKLU MEIRA EN "BARA" DISKÓTEK   -   GOTT  DISKÓTEK OG KARÓKÍ SAMAN

 

ROCK, DANCE, MOTOWN, NÝ-RÓMANTÍK, TRANCE, DISKÓ, FUNK, LOUNGE, HIP-HOP, HOUSE, R & B, PUNK, ROCK N' ROLL, TECHNO, RAVE, POP, BLUES...

 
 

  

 
 

Diskótek og diskótek er ekki það sama...!

 
 

Flottasta diskótekið

DISKÓTEK  (FLOTT HLJÓÐKERFI) OG KARÓKÍ.
EITT FLOTTASTA FERÐADISKÓTEKIÐ.
ALVÖRU LJÓSASHOW.
ALLT Í DÍÓÐUM.
HLJÓÐNEMAR EFTIR ÞÖRFUM.
FYRIR SÖNG, HLJÓÐFÆRI O.FL.
VIÐ ERUM TÆKNIMENNIRNIR ÞÍNIR UNDIR SKEMMTIATRIÐUNUM.
AÐSTOÐUM MEÐ TÆKNIMÁLIN.
KARÓKÍ INN Á MILLI EÐA Á UNDAN. TOPP SKEMMTUN...!
SJÁIÐ SJÁLF UM SKEMMTIATRIÐIN.
FLOTT DISKÓTEK SEM SÉR UM DINNERINN OG DANSLEIKINN.
LOUNGE, DINNER OG LÉTT TÓNLIST.
 GÓÐA SKEMMTUN!
   

 

     
     

Gott og skemmtilegt diskótek.

Öll tónlist og stemning fyrir alla aldurshópa. Flott diskótek og hljómgóð hljóðkerfi. Spilum eftir aldri samsetningu og stemningu ballgesta... og við kunnum ýmislegt fyrir okkur.

Það er ekki nóg að vera með þúsundir laga. Það eru jafnvel bara um 60-100 lög sem eru spiluð á ballinu... og það eru þau sem skipta máli... og þá skiptir máli að hafa fagmann í verkinu... gott diskótek.

Verið ykkar eigin skemmtikraftar og skemmtið ykkur saman á hagkvæman og ódýran máta. Eitt sem fyrirtæki ættu að gera meira að, er að bjóða starfsmönnum t.d. upp á nokkra bjóra og karókí... já eða diskótek... eða bara bæði í lok vinnu t.d. á föstudögum í 2-3 tíma. Góð hugmynd dagana fyrir sumarfrí, jól og áramót.

   
   

 

   

Góðir  plötusnúðar  þurfa að kunna og geta stjórnað fólki og að kunna að fá það með og "Þekkja alla  mögulega og ómögulega tónlist". Diskótek og diskótek er ekki alltaf það sama. Áralöng reynsla hefur komið okkur áfram! Það er ýmislegt sem góður diskótekari þarf að huga að eins og t.d. hvenær á að skipta um tónlistarstefnu, spila rómantísk lög, hvenær á að stoppa og hvenær og hvenær  á ekki að spila viss lög og geta talað við fólkið og skemmt því.

   
 
 

   
   

Diskótekarinn er diskótekið

Þar sem þörf er á góðum tækjum og diskótekurum sem geta bæði spilað og talað og stjórnað því sem er í gangi.

Við sjáum um veisluna þína frá upphafi til enda. Spilum létta tónlist í fordrykknum og matnum.

Gestir, veislustjórar og skemmtikraftar nota hljóðkerfið og hljóðnemana að vild og við erum tæknimennirnir.

Síðan sjáum við um ballið. Þú þarft ekki að leigja þér eitt einasta tæki eða hljóðnema aukalega annarsstaðar. Allt fylgir! Hafðu diskótekið lifandi.

 
 
Diskótek fyrir öll tilefni.
 

Ferðumst um allan heim. Síðastliðin ár höfum við ferðast um allt land og rúmlega það. Stærsti hlutinn er þó á höfuðborgarsvæðinu. Nokkra staði má nefna: Akureyri, Þórshöfn á Langanesi, Hrísey,  Skaftafell, Höfn í Hornafirði, Hellisand og erlendis  til Frankfurt, Brussel og  Kaupmannahafnar svo eitthvað sé nefnt.

Topptæki og toppmenn! Alvöru diskóteks-mixer

Þessi er frábær: DJ Xponent mixer frá M-Audio.

Við komum með fullkomið diskótek, allt sem þú þarft og erum tæknimennirnir ykkar fram að dansi og aðstoðum við tæknilegu hliðina á skemmtuninni.

Diskótekið er í tölvu. Erum með um og yfir 50.000 lög með okkur og spilum við eftir aldri samsetningu og stemningu hópsins. Á venjulegu balli eru spiluð í mesta lagi 80-100 lög og það þarf kunnáttu til að velja þau. Það þýðir ekkert að vera með tilraunastarfsemi t.d. í brúðkaupum, allt verður að ganga upp frá upphafi til enda.

    MUNIÐ EFTIR SMÁFÓLKINU!

 
     

Söngvarakeppni í Smáralind.

Barnaskemmtanir eru okkar mál. Það er ekki nóg að spila bara eitthvað. Það þarf að stjórna og drífa liðið áfram...

Við látum börnin fara í halarófur og hringdansa og annað skemmtilegt sprell.

Tískusýningar, keppnir, söngvarakeppnir, barnaskemmtanir og verðlaunaafhendingar í stórmörkuðum, verslunum og úti á verslunargötum/torgum er minnsta mál fyrir okkur! Þar sem þarf góð tæki, góða tónlist og góða kynna.

 

 

 

Eftir áralanga starfsemi og innkaup eigum við öll barnalögin sem þarf á barna-, jóla og 17. júní skemmtanirnar.

 

 

Í himnaríki eru:

Kokkarnir eru franskir.

Lögreglumennirni íslenskir.

Tæknimennirnir þýskir.

Elskhugarnir ítalskir.

Bankastarfsmennirnir svissnenskir.

 

Í helvíti eru:

 

Kokkarnir enskir.

Lögreglumennirnir þýskir.

Tæknimennirnir franskir.

Elskhugarnir svissneskir.

Bankastarfsmennirnir íslenskir.

 

    

discodisco.is    

 

ÞÚ ERT GESTUR NÚMER

frontpage hit counter

ÞESSI SÍÐA VAR UPPFÆRÐ 17. MAÍ 2012.