FERÐADISKÓTEK

Það er auðvitað mikilvægt að diskótekarinn þekki tónlistina sem gestirnir vilja hlusta á. Þessi venjulega milli-tónlist er það sem virkar alltaf en það er aldrei að vita í hvaða stefnu brúðkaupið getur farið. Er mikið af "eldra" fólki eða "ungu" fólki og hvenær er við hæfi að spila fyrir hvern og einn? Á einu kvöldi er hægt að spila með góðu móti um 100 lög og það er nokkuð ljóst að það er ekki hægt að spila þau hvenær sem er. Stuðlag í útvarpinu er ekkert endilega stuðlag á gólfinu eða hvað? Á réttum tíma getur það nefnilega verið það.

Í brúðkaupum höfum við ekkert verið að stressa okkur yfir tímafjöldanum og búnir að stilla öllu upp t.d. klukkan 17:00-18:00 þegar gestirnir eru að koma til veislu og byrjaðir að spila létta og þægilega tónlist. Við tökum að okkur aukatímana frítt. Það er brúðkaupsgjöfin okkar til ykkar. Þannig eruð þið með hljóðmann sem sem sér um og stjórnar hljóðkerfinu sem er svo bráðnauðsynlegt undir borðum.
![]()
Við tengjum allt tengjanlegt við tækin og aðstoðum veislustjórann við tæknilegu hliðina. Stórt áhyggjuefni í burtu þar.

Dansið þið vals eða eitthvað sem þið kunnið ekki að dansa? Afhverju ekki að gera það sem ykkur langar að gera? Hvað er "lagið ykkar"?

Það er ýmislegt sem fólk hefur valið að dansa við. Lög eins og "I Was Made For Loving You" með Kiss og "Du hast" með Rammstein hafa jafnvel dúkkað upp á sem fyrsta lag í brúðkaupum!
