FERÐADISKÓTEK

GOTT SKIPULAG, GOTT KVÖLD.

REGLA NÚMER 1: Forðist alltaf að borða í einum sal og dansa í öðrum. Það er ávísun á að eyðileggja ballið. Eins skulið þið gera ráð fyrir að hafa þau tæki og hjálpartól sem nota á í veislunni sé í salnum frá upphafi. Það getur verið afar lítið sem diskótekari getur gert til að ná fólki úr einum sal yfir í annan. Það þarf að skapa gott umhverfi fyrir dansinn.
Við bjóðum brúðhjónum "allt kvöldið" á sama verði og byrjum að byggja upp stemningu um leið og gestir mæta. Alls ekki vanmeta það! Þegar dansinn hefst erum við kannski búin að byggja upp létta stemningu sem er góður undanfari þess sem koma skal. Þess fyrir utan er það ómetanlegt að hafa mann til aðstoðar við tæknimálin þannig að veislan gangi eðlilega fyrir sig og aðstoðum meira að segja óvana veislugesti við að stilla af hljóðnemana þannig að þeir nýtist.
ÞAÐ ER EKKI SAMA HVAR DISKÓTEKIÐ ER STAÐSETT. Gera þarf ráð fyrir að það séu ekki borð fyrir framan diskótekið. Hátalararnir þurfa að standa frjálsir. Sitji fólk fyrir framan þá er víst að það sitji í hávaða og sem tappar fyrir hljóðinu sem þarf að komast út í sal. Hljóð er eins og vatn, það fer beinustu leið og þarf framrás. Látið veislusalinn vita að það þurfi að koma diskóteki fyrir. Það er ekki endilega gefið að versti staðurinn sé við hátalarana þegar kemur að því að staðsetja eldra fólkið í salnum. Í sumum sölum getur verið mátulegt hljóð allstaðar nema aftast í salnum! Auðvitað stillum við hljóðinu í hóf en þetta er nokkuð sem ágætt er að vita af.

ÞRÖNGT? Gera þarf ráð fyrir að skemmtiatriði komist fyrir, þ.e. hljóðnemar á sviði eða fyrir framan diskótekið. Sé þröngt um diskótekið og stutt á milli hátalaranna er möguleiki á "Feed-back" (Ískri) ef hljóðnemarnir eru of stutt frá hátölurunum. Best er að koma skemmtiatriðunum við hliðina á diskótekinu. Það er fullt af fólki sem gerir sér enga grein fyrir því afhverju tæki "feed-backa" og labba aftur og aftur fram fyrir hátalarana og skilja ekkert í því hvað þessi tæki geta ískrað mikið!
ÞAÐ ER EKKI BARA DISKÓTEKARINN SEM NOTAR TÆKIN...
PLÁSS. Gera þarf ráð fyrir að það séu ekki borð fyrir framan diskótekið. Hátalararnir þurfa að standa frjálsir. Sitji fólk fyrir framan þá er víst að það sitji í hávaða og sem tappar fyrir hljóðinu sem þarf að komast út í sal. Hljóð er eins og vatn, það fer beinustu leið og þarf framrás. Látið veislusalinn vita að það þurfi að koma diskóteki fyrir.
ÞEIR SEM TROÐA UPP GETA TENGT HLJÓÐFÆRI OG ÝMIS TÆKI Í HLJÓÐKERFIÐ OKKAR. HLJÓÐ FYRIR SKJÁVARPANN, FARTÖLVUNA, iPOD-INN, RÆÐURNAR O.S.FRV.
ÓVÆNT? Brúðhjón, hafið í huga að stundum vitið þið ekki af því að einhverjir koma til með að vera með myndasýningu. Gerið ráð fyrir þeim möguleika. Ágætt er að láta sali vita af því með fyrirvara (Ef brúðhjónin vita ekki af því) þannig að starfsfólk geti raðað salnum upp með það í huga.
SKIPULAG? Veislustjóri þarf að skipuleggja hvernig gestir fara í matinn eða að kökunni sé um slíkt að ræða og að borðhald dragist ekki á langinn fram eftir nóttu. Það er ágætt að nota tímann á milli rétta fyrir skemmtiatriði og ræður.
DANSINN. Ákveðið hvenær borðhaldi á að ljúka og hvenær dansinn á að hefjast. Áætlið tímann sem fer í hvert atriði og hvern rétt fyrir sig. Okkar reynsla er sú að eigi að halda ball eftir mat er gott að "hella" aðeins upp á gestina. Ekki draga það fram eftir kvöldi að slíta formlega borðhaldi.
SKÁL! Látið það berast fyrirfram ef boðið er upp á áfengi Þá getur fólk gert ráðstafarnir með geymslu á bílnum sínum eða heimkeyrslu og er lílklegra til að staldra við allt kvöldið.