BRÚÐKAUPSRÆÐA FÖÐURS:

Kæra Sigga! Það er virkilega fyndið hvernig sagan endurtekur sig. Að hugsa sér, það er aðeins fyrir 30 árum sem við mamma þín settum þig í litla rúmið þitt með litla apanum sem þér þótti svo vænt um... og núna endurtekur sagan sig upp á nýtt...

 
     Opnanir:
 
Fjölskylda og vinir…. venjulega myndi ég segja:  „Virðulegu Herrar og frúr“ en þannig er það nú; að ég veit betur.
 
Herrar og frúr; þetta hefur verið svo skemmilegur og spennandi dagur að ég er hreinlega orðlaus… sem eru örugglega góðar fréttir fyrir flest ykkar.
 
Herrar og frúr; ég hef verið beðinn um að segja nokkur vel valin orð. Hér eru þau: kornsterkja, kjarnorkusamruni, gervihnöttur, vitgrannur …. en hér kemur svo aftur á móti ræðan mín.
 
Herrar og frúr. Til þess að virka ekki eins og ég sé pólítískur hef ég fjarlægt allan póítískan áróður úr ræðunni…. (þögn)… Takk fyrir… (láttu eins og þú ætlir að sitjast).
 

 

Maðurinn varð afar hissa þegar gamall félagi hans til margra ára hafði samband við hann og bað hann um að vera svaramaður í brúðkaupinu sínu. Þeir höfðu ekki hist í þó nokkur ár og hafði það talsverð áhrif á hann þegar hann var að semja ræðuna sem honum bar sem svaramanni auðvitað að framreiða. Hann rifjaði upp gamla tíma og það sem honum datt helst í hug var að ræða um hversu mikill brandarakall og allsherjar stríðnispúki brúðguminn hefði verið í gamla daga. Með þetta í huga datt honum í hug að skrá niður lottótölurnar á seðlinum sem brúðguminn keypti í einni sameiginlegri sjoppuferðinni þeirra daginn fyrir brúðkaupið.

Þegar hann hóf að ræðuna sagðist hann vera mikil lottóspilari og þar sem það hefði verið að draga út tölurnar í risapottinum akkúrat rétt áðan ætlaði hann að telja þær upp. Hann sá að brúðguminn og þó nokkrir aðrir tóku upp miðana sína um leið og hann taldi upp vinningstölur kvöldsins.

Brúðguminn varð meir og meir spenntur eftir því sem tölunum fjölgaði og að lokum hoppaði hann upp og gargaði yfir hópinn að hann hefði unnið stóra vinninginn, hann væri orðinn ríkur, ríkur, ríkur! Hann hljóp um allt og sýndi öllum miðann. Nýja brúðurin skellihló og sagði að það væri virkilega flott að þau gætu hafið búskapinn sem rík hjón. Hvað meinarðu? Spurði hann. Þetta er miðinn minn, ég er ríkur, fyrir utan að ég hef sofið hjá systur þinni í tvo mánuði sagði hann og greip í hönd systurinnar sem hljóp með honum úr veislunni.

Það hefur ekkert heyrst frá þeim síðan.

 

F***aðu þér bara pínku-pínkulítið....

Þau völdu veislustjórann sjálf, svo...! Hefðu kannski átt að semja um hvað hann segði í veislunni...?

   

Allir karlmenn ættu að giftast. Hamingja er ekki það eina í lífinu.

 

Ný-giftu hjónin voru í brúðkaupssvítunni eftir veisluna. Brúðguminn ákvað að láta brúðina vita hvar hennar staða í hjónabandinu yrði. Hann klæddi sig úr buxunum, fleygði þeim til hennar og sagði: „Farðu í þessar“. Brúðurin svaraði undrandi: „Ég get ekki gengið í buxunum þínum“. „… og gleymdu því ekki“ sagði hann hrósi sigrandi… „Ég mun alltaf vera sá sem gengur um í buxunum í þessari fjölskyldu“. Brúðurin klæddi sig úr nærbuxunum og kastaði í andlitið á honum og sagði: „Farðu í þessar“! Hann svaraði: „Ég kemst ekki í nærbuxurnar þínar“. „… og það munt þú aldrei geta fyrr en þú skiptir um viðhorf “ svaraði brúðurin með þjósti.

 

 

 

Eldri maður fór til Galdrakarls og spurði hvort hann gæti afmáð bölvunina sem hann hefði þurft að lifa við síðustu 40 árin. Galdrakarlinn svaraði: „Kannski, en þú verður að segja mér orð fyrir orð nákvæmlega sömu orðin og notuð voru til að koma bölvuninni á þig“. Gamli maðurinn hélt áfram án nokkurs hiks: „Hér með lýsi ég ykkur hjón. Þú mátt kyssa brúðina“.

 

 

Það er alltaf pláss fyrir nóg af gestum í gömlu góðu félagsheimilinum.

 

Íha... flýjum gestina...!

     
    BRÚÐKAUPSTERTAN GÓÐA!

Kona nokkur í Bandaríkjunum var stödd í brúðkaupi fyrir nokkrum árum þar sem hún tók mynd af þessari fallegu og góðu brúðkaupstertu. Þar sem hún bjó allt of langt frá þeim stað þar sem brúðkaupið var haldið ákvað hún að fara með myndina í aðal bakaríið í bænum sem hún bjó. Henni blöskraði verðið sem var sett upp svo hún endaði í "bakaríinu á horninu" rétt þar sem hún bjó. Ungur bakarinn leit á myndina og sagði að það yrði lítið mál að baka svona köku.

Og þar sem verðið var afar gott sló konan til og til að vera viss um að missa ekki af kökunni þá greiddi hún hana fyrirfram. Bakarinn hélt myndinni til að fara eftir til að kakan yrði sem næst eins og um var samið.

 

Það varð síðan að samkomulagi að bakaríið myndi senda tertuna þangað sem veislan yrðii haldin.

  Fyrirmyndin
     

Það fyrsta sem veislugestir ráku augun í þegar þeir komu í fordrykkinn beint úr kirkjunni var kakan frá bakaríinu.

Eins og um var samið var kakan komin á veisluborðið úti í garði og nokkuð ljóst að bakarinn hafði farið eftir fyrir-myndinni í megindráttum, kannski dálítið klaufalega... en hvað er hægt að biðja um meira?

Það fylgdi reyndar sögunni að bakarinn hafi fengið sér vel í glas um nóttina á meðan hann var að skreyta kökuna!

 
 
    Eftirmyndin
     

GÓÐIR RÆÐU-FRASAR Í BRÚÐKAUPSRÆÐUR:

 
Ég var beðinn um að útbúa nokkrar línur (sjúgðu upp í nefið haltu um það) og nú þegar ég er búinn að sniffa þær upp þá líður mér virkilega vel.

Þetta er í fimmta skiptið í dag sem ég stend upp með heitan pappír í hönd.

Ég er búinn að skemmta mér svo vel að ég vona að mér verði boðið í næsta brúðkaup annars hvors þeirra.

Fyrst vil ég segja við (nafn brúðgumans) að ég er viss um að allir hér í dag halda að þú sért einstaklega heppinn vegna þess að þú tókst að eiga (nafn brúðarinnar) í dag. Við vitum öll að (nafn brúðarinnar) er falleg, fyndin og einstaklega alúðleg og á svo sannarlega skilið að eignast góðan eiginmann. Svo guð sé lof að þú giftist henni áður en hún fann einn slíkan.

Okkur var að berast skeyti frá Lögfræðistofunni XXXXX. Kæri (nafn brúðgumans). Okkur þykir það leitt en skv. nýjustu upplýsingum frá Sýslumanni mun skilnaður þinn ekki hafa gengið í gegn vegna tæknimistaka við skráningu. Verðum að biðja þig um að koma aftur á skrifstofu okkar við fyrrsta tækifæri og skrifa undir nýja pappíra vegna málsins og mun þá skilnaðurinn ganga í gegn innan 5-8 mánaða eftir undirritun prests og dómara.

Annar vinur okkar var handtekinn vegna bankaráns og hann fékk bara 5 ára dóm.

Brúðguminn er afar frjálslegur í fasi og framkomu og t.d. alveg sama þó sé ekki sá grennsti í  heimi. Það besta við þetta er að brúðurin hefur ekki minnstu áhyggjur vegna þessa heldur. Þá er það nú þannig að brúðguminn hefur lagt mikið á sig að halda sig í formi fyrir brúðkaupið. Það versta við það er að formið sem hann valdi sér er kringlótt.

Hér fyrir framan okkur höfum við tvo trúaða og Guðhrædda einstaklinga sem fylgja boðorðunum 10 sameiginlega til hins ítrasta… hvort þeirra framfylgir allavega fimm af þeim.

Ég er með góðar og slæmar fréttir… fyrst góðu fréttirnar; Eftir ræðuhöldin mun Siggi, frændi brúðarinnar syngja fyrir okkur. Þetta voru góðu fréttirnar… og það gefur okkur góða hugmynd um hversu slæmar slæmu fréttirnar eru….

Sumir giftast af ást, aðrir vegna félagsskaparins og enn aðrir af öðrum ástæðum; Sigga vantaði ristavél.

Ef það er mikil þögn eftir brandarann eða ræðuna þín getur þú bent á eiginkonunna og sagt: “Hvað sagði ég þér…? Við hefum átt að bíða með ræðurnar þangað til eftir mat þegar allir eru… þú veist… glúgg…glúgg… (gera glas-hreyfingu) orðnir drukknir”.

     

Eitt af verra "gríni" sem við höfum heyrt af er af fólki sem æfði 5 ára son sinn í að hlaupa upp að altarinu í miðju brúðkaupi vina þeirra, kippa í jakkafaldinn á brúðgumanum, og segja: "Pabbi, pabbi, hvað ertu að gera..."? Það tók næstum klukkutíma að hefja athöfnina aftur!

   
 

 

Þessi hér fyrir neðan er tekin á Hótel Borg:

Hver skyldi svo hafa gripið brúðarvöndinn?

 

 

Víííííííi... gaman.... þar fór brúðarvöndurinn....!

 
     
     

Þetta er ástæðan fyrir því að það borgar sig að giftast í kirkju!
     
     

Sköpun Mannsins.  Guð skapaði asnann og sagði við hann: "Þú skalt vera múlasni, vinnandi frá morgni til kvölds með þungar byrðar á bakinu. Þú munt éta gras og skorta allt skilningarvit. Þú munt lifa í 50 ár". Asninn svaraði: "Að lifa svona í 50 ár er allt of mikið. Látum 20 ár duga. Og þannig varð það.

Guð skapaði hundinn og sagði við hann: "Þú munt gæta mannsins og þú verður hans besti vinur og mesti félagi. Þú munt éta leyfarnar sem falla til af borðum hans og lifa í 25 ár". Og hundurinn svaraði: "Guð minn góður, að lifa sem hundur í 25 ár er allt of mikið, látum 10 ár duga". Og þannig varð það.

Guð skapaði apann og sagði við hann: "Þú ert api. Þú munt sveifla þér frá tréi til trés, hagandi þér eins og fífl. Þú verður afar fyndinn og munt lifa í 20 ár. Og apinn svaraði: "Að lifa eins og trúður heimsins í 20 ár er allt of mikið. Getum við ekki látið 10 ár duga?". Og það varð úr. A

Að lokum skapaði Guð manninn og sagði við hann: "Þú ert maður, eina vitræna tegundin sem mun ganga á jörðinni. Þú munt nota gáfur þínar til að drottna yfir öllum hinum tegundunum og lifa í 20 ár. Og maðurinn svaraði: "Guð minn, 20 ár er allt of lítið. Gefðu mér 20 árin sem asninn vildi ekki, 15 árin sem hundurinn afsalaði sér og 10 árin sem apinn neitaði sér um". Og þannig varð það.

Og Guð lét Manninn lifa í 20 ár sem mann. Svo lét hann manninn giftast og lifa önnur 20 ár eins og asni með þungar byrðar á bakinu. Síðan léta hann mannin eignast börn og lifa eins og hund í 15 ár, gætandi hússins og étandi afgangana eftir hina. Að lokum lét hann manninn á gamals aldri lifa eins og apa, hagandi sér eins og fífl við að skemmta barnabörnunum. Og þannig er það! 

     
     

 

Í brúðkaupsveislunni hóf ný-gifta parið að ræða um barneignir. Brúðurin sagðist ætla að eignast þrjú börn en ungi eiginmaðurinn var alveg ákveðinn í því að þau myndu ekki eignast nema tvö.

Þetta ræddu þau út og suður án þess að komast að nokkurri niðurstöðu. Brúðguminn ákvað því að stöðva umræðurnar og sagði með þjósti: "Þegar við verðum búin að eignast tvö börn, læt ég taka mig úr sambandi".

Án þess að hugsa sig um sagði brúðurin: "Jæja, ég vona að þú munir elska þriðja barnið eins og þitt eigið".

Eftir brúðkaupsveisluna er fínt að skella sér í Sorpu og selja flöskurnar. Það er hellings peningur í slíku.   Er þetta ekki sætt?
     Sumir taka sig mátulega alvarlega.

Þrjú pör fóru til prests í sértrúarsöfnuðinum til að athuga hvort þau gætu orðið meðlimir í söfnuðinum. Presturinn sagði að nú reyndi á þau. Þau þyrftu að geta verið án kynlífs í 2 vikur og koma síðan og láta hann vita hvernig gekk. Fyrsta parið var ellilífeyrisþegar, annað parið "miðaldra" og yngsta parið ný-gift.

Vikurnar tvær liðu og pörin mættu til prestsins til að gefa skýrslu um gang mála. Ellilífeyrisparið sagði að þetta hefði ekki verið neitt mál. Miðaldra parið sagði að þetta hefði reynt aðeins á þau en þó gengið ágætlega. Ný-gifta parið sagði að þetta hefði verið þó nokkuð erfitt fyrstu vikuna þangað til hún missti niður málningarfötuna. "Málningarfötuna???!!!" spurði presturinn undrandi. "Jubb", sagði sá ný gifti. "Hún missti niður málningarfötuna og þegar hún beygði sig niður eftir henni varð ég að fá hana þar og nú, lostinn tók völdin".

Presturinn hristi höfuðið vantrúaður og sagði að þau væru ekki velkomin í þessa kirkju".

"Það er allt í lagi" sagði maðurinn, "Við erum orðin vön þessu, við erum ekki velkomin í BYKO heldur".

 

    Brúðkaupsmyndin!
     
 
     
Fyrir og eftir brúðkaupið í SMS skilaboðum.    

Hann: Já. Loksins. Það hefur verið erfitt að bíða svona lengi.

  • Hún: Viltu að ég fari?

  • Hann: Nei! Ekki einu sinni hugsa um það.

  • Hún:  Elskar þú mig?

  • Hann: Auðvitað!

  • Hún: Hefurðu haldið fram hjá mér?

  • Hann: Nei! Afhverju spyrðu?

  • Hún:  Muntu alltaf kyssa mig?

  • Hann: Já!

  • Hún: Muntu berja mig?

  • Hann: Auðvitað ekki, ég er ekki svoleiðis maður.

  • Hún: Get ég treyst þér?

  • Hann: Já.

Nú! Eftir brúðkaupið er ekkert annað að gera en að taka sig til og lesa þetta aftur og byrja neðst og fara afturábak.

 
  •    Þetta segir maður ekki við altarið:
  •     10. Vá! Það er miklu meiri klassi yfir þessu

  •             brúðkaupi en mínum fyrri.

  •      9. Vó, þú lítur "öðruvísi út" í þessari birtu.

  •      8. Loksins, íslenskur ríkisborgari.

  •      7. Elskan, minntu mig á að koma við í apó-

  •          tekinu og kaupa meira Viagra.

  •      6. Bíddu aðeins, þú ert rík, ekki satt?

  •      5. Guð sé lof, ekki fleirri megrunarkúrar og

  •          þrotlausar æfingar í ræktinni oftar.

  •      4. Ástin, þú átt eftir að elska að búa í

  •          kommúnunni.

  •      3. Ég vild óska að skilorðsfulltrúinn minn væri

  •          hérna til að sjá þetta.

  •      2. Hey, hvaða gella er þetta á fyrsta bekk?

  •      1. Ég get ekki beðið eftir því að mamma flytji

  •          inn til okkar.

     
 
     
Hjónaband er samband þar sem annar aðilinn hefur alltaf rétt fyrir sér… og hinn er eiginmaðurinn.
     
Er ekki einn svona í hverri fjölskyldu?
     
     
Lítur betur út!