DISKÓTEKIÐ Ó-DOLLÝ!        HLJÓMAR BETUR...

LÉTT OG LAGGOTT...!

...og betur og betur og betur....

 

...og lítur betur út!

 

Beint og fínt.

Auglýsingamarkaðurinn á íslandi er í mikilli kreppu og logo fyrirtækja, slagorð og auglýsingar oft stolin eða skrumskæld frá öðrum löndum (Og innanlands).

Það besta við þetta er að það eru auglýsingastofur sem taka peninga fyrir þessa milliliða-starfsemi. Við getum örugglega fundið eitthvað út fyrir þessi fyrirtæki fyrir minni eða jafnvel engan pening

 

discodisco.is

554 6666       898 1666 

 

 

 

 

 

 

DISCO FRISCO!

HLJÓMAR MIKLU BETUR!

Í gamla daga var slagorðið okkar: "LÉTT OG LAGGOTT". Þá fann einhver sniðugur upp á að nota það í eitthvað allt annað og til að vera ekki hallærislegir skiptum við yfir í "Hljómar betur" og "Hljómar miklu betur".

Auglýsingastofan "Komdu á morgun" fékk þá hugmynd fyrir hönd JAPIS að nota slagorðið HLJÓMAR BETUR. Við getum verið sammála JAPIS um "hljóminn". Mikið af tækjum, snúrum og tól sem við notum eru frá JAPIS. Eins er viðgerðarþjónustan hjá JAPIS er sérlega góð (Sónn, Þverholti). JAPIS gefur út og dreifir flottum tónlistarmönnum sem við spilum mikið og kynnum. Það er bara ein tilviljun í öllu dæminu: Japis valdi sér ákaflega líkt slagorð og við...já mjög líkt....eiginlega alveg það sama...!

Þannig er nú það...en... come on...fyrr má nú hljóma en ofhljóma... !!!

...og meira...!  Síminn tók upp slagorðið: "HLJÓMAR MIKLU BETUR" (kannski eftir að hafa lesið þessa síðu?) og Tal notaði  "HLJÓMAR VEL". Það verður að segjast eins og er að þarna fær frumleikinn að njóta sín út í ystu æsar. Sem hugmynd fyrir t.d. hljómtækjaverslun mætti nota: "HLJÓMAR MIKLU-MIKLU-MIKLU BETUR". Síðan gæti hver og einn sem fær þessa frábæru hugdettu bætt einu "...MIKLU..." inn í til að allir séu með á hreinu hvurs frumleikinn er. 

Annars eru þeir hjá  B.T. "frumlegastir" því í desember 2002 tóku þeir upp hið frumlega slagorð "Hljómar betur".

Síðan hafa einhverjir tekið upp: Hljómar vel (T.d. Íslandsbanki) og síðast en ekki síst "Nóatún" sem einnig er afar frumlegt.

Vonandi hafa þessi fyrirtæki ekki þurft að borga auglýsingastofum háar upphæðir fyrir þessa hugmyndavinnu. Við hefðum getað gert þetta ókeypis!

Annars var fyrsta slagorðið okkar hálf lélegt: "Diskótekið ykkar" þannig að við fórum á stúfana og úr varð slagorðið:

Létt og laggott!

Við notuðum þetta slagorð í einhverja mánuði  eða ár á áttunda áratugnum eða þangað til að visst fyrirtæki fór að framleiða vissa vöru undir því merki. Kannski hefur hugljómunin komið frá okkur? !

SVO BARA TIL GAMANS... SVONA VAR JANÚAR 2011: