EITT FLOTTASTA FERÐADISKÓTEKIÐ Á ÍSLANDI
ÞESSI SÍÐA BYRJAÐI Í VINNSLU 27. OKTÓBER 2011 OG VERÐUR Í VINNSLU FRAM Í MIÐJAN NÓVEMBER.
GÓÐAR HUGMYNDIR SEM LIGGJA Í LOFTINU OG GOTT ER AÐ GRÍPA....
Það er alltaf gott að breyta til og gera ýmislegt annað að það gamla upp á nýtt t.d. þegar við höldum upp á afmælið eða giftum okkur. Það þarf ekkert endilega að fara fram á nóttunum. Íslendingar eru afar upteknir af því að "Djamma" seint og síðar meir á deginum. Það er ýmislegt sem við höfum séð, gert eða haft hugmyndir um sem hefur komið vel út. Fyrirtæki gera allt of lítið af því að halda ófyrirsjánleg partý svona bara til að létta móralinn. VERIÐ GRAND Á ÞVÍ - GÓÐ HUGMYND:
Góð hugmynd fyrir stór-afmæli:
Bjóða í hádegismat eða brunch t.d. kl. 13:00.
Vera síðan með karaoke t.d. frá 15:00 - 17:30 (...give or take).
Þetta höfum við séð gert (oftar en einu sinni) gert á efstu hæðinni í eldri byggingunni á Grand Hótel. "Afmælisbörnin" (50 og 60 ára) buðu allri fjölskyldunni og vinum. Matur, ræðuhöld og skemmtiatriði voru í stærri salnum af tveimur. Síðan fluttu þeir sig, sem það vildu yfir í salinn á móti og sungu í karaoke.
Flott stemning og öll fjölskyldan sem hefði líklega aldrei sungið í karaoke, söng saman. Trúið mér; einstök fjölskylduskemmtun. Ekki var boðið upp á neitt áfengi (en auðvitað metur hver og einn það). Það eru hreinlega ekki allir inn á þeirri línu.
ÓDÝRASTA LEIÐIN TIL AÐ HALDA STARFSFÓLKI ÁNÆGÐU ER AÐ HALDA SMÁ VEISLUR OG BJÓÐA ÖLLUM Í GLAS.
GÓÐ HUGMYND Í FYRIRTÆKINU ÞÍNU.
HVERNIG VÆRI AÐ NOTA EINS OG ÞRJÁ KLUKKUTÍMA FYRIR JÓLIN Í "HÓPEFLI"?
KOMIÐ STARFSMÖNNUM Á ÓVART.
FÖSTUDAGAR (EFTIR VINNU) FYRIR JÓLIN ERU SÉRSTAKLEGA GÓÐUR TÍMI TIL ÞESS AÐ GERA VEL VIÐ STARFSFÓLKIÐ.
GALDURINN ER GOTT KARAOKE
OG/EÐA DISKÓTEK
Því miður þá eru margir atvinnurekendur blankir eins og almenningur almennt en margir hverjir eru bara hreinlega nískir. Það þarf ekki endilega að halda "stór-veislur" í hvert skipti sem eitthvað er gert. Eitt er það sem íslendingar hafa ekki tileinkað sér er að halda smá jólafagnaði einhverntíman í desember rétt fyrir jólin.
Eftir vinnu einhvern föstudaginn er flott að panta eitthvað gott í gogginn. Það eru auðvitað mismunandi verð í gangi á þeim vellinum. Allt frá pinnamat eða smáréttum upp í góða máltíð. Það eru ótal veisluþjónustur í slíku. Síðan er hægt að panta allan fjárann, pizzur, báta, allra þjóða mat, kjúklinga, hamborgara og þannig mætti lengi telja.
Setja upp jólasveinahúfur. Allir kaupa eitthvað í pakka fyrir 500 - 1000 kall og setja í poka og skiptast á gjöfum með
að dreifa upp úr pokanum. Atvinnurekandi getur notað tækifæri til að gefa starfsmönnum pakka. Það þarf ekki að vera dýrt til að sýna að ykkur er ekki sama um starfsfólkið. Okkar reynsla er sú að sérhæfður matur eins og t.d. reyktur matur er ekki fyrir alla. Það eru t.d. fullt af góðgerðasamtök að gefa út jólamuni og skartgripi sem eru flottar gjafir.
Svo er bara að syngja jólalög í karaoke og dansa saman við góða tónlist frá Ó-Dollý! Svona skemmtun þarf ekki að standa lengi og er ekki svo dýr miðað við hvað kostar almennt t.d. að vera með hópefli og aðrar "fyrirbyggjandi" og góðar móralsaðgerðir. Þess fyrir utan þurfum við að spara... ekki satt?
Verum í hugmyndaríku sambandi:
disco
disco.is
554 6666
898
1666