HVAÐ ER KARÓKÍ?

 

KARÓKÍ er Japönsk samsetning á orðunum "KARA" sem er tekið af orðinu "KARAPPO" og þýðir tómur og úr orðinu "OKE" "OKESUTRA" (Orchestrra á ensku) sem þýðir hljómsveit.

Venjulegur tónlistardiskur inniheldur yfirleitt söng og undirspil. Karaokediskur er eingöngu með undirspilinu svo fólk geti sungið í stað söngvaranna. Undirspilið hljómar og textinn birtist á sjónvarpsskjánum. Textinn rennur yfir skjáinn og breytir um lit þegar söngvarinn á að syngja.

Backstreet Boys mega vara sig á þessum!

 UPPHAF KARÓKÍ DISKSINS

Í upphafi 10. áratugsins framleiddi Pioneer 12 tommu karókí laser disk (jafn stór og vínyl plöturnar). Disk sem var svipaður og Laser Video diskur sem þangað til hafði aðallega verið gerður fyrir frægar/söluvænar bíómyndir. Laser diskurinn varð afar vinsæll fyrir karókí  þar sem nú var hægt að láta texta laganna renna yfir sjónvarpsskjá með tónlistinni um leið og sungið var.

Pioneer bætti síðan hljóðnemarásum á spilarana með "ekkói"  til að auðvelda sönginn og möguleika á að fleirri en einn gæti sungið í einu án þess að þurfa að nota sama hljóðnemann.

Þar sem markaðurinn var lítill fyrir laser diska og spilara m.a. vegna stærðar diskanna varð úr að nýta CD diskana eins og þeir eru í dag. Það virðist vera framtíðarformið í bili. CD diskar DVD diskar og VCD diskar eru þar að auki það ódýrir í framleiðslu og tæknin við að þjappa æ meira magni af upplýsingum á diskinn er alltaf að aukast.

Undirspilið hljómar, myndir eru á skjánum ásamt auðvitað söngtextanum sem rennur yfir skjáinn. Stundum er textinn á bláum grunni án mynda (Video Graphic Discs). Slíka diska er hægt að spila í venjulegum CD spilara (án textans þó).

Karókí kemur upphaflega frá Japan (Nema hvað...!) Það er afar vinsælt út um allan heim á svo til öllum tungumálum...nema íslensku. Aðeins einn karókí diskur hefur verið gefin út á DVD á Íslandi. Skífan gaf hann út og síðan ekki söguna meir?  Á honum eru flest lögin lög sem fólk myndi alla jafna ekki syngja í karókí og því léleg söluvara. Kannski til að sýna fram á að svona útgáfa sé ekki arðvænleg enda engin samkeppni! Fyrst var karókí-tónlist sett á kassettur en það form var afar takmarkað þar sem textar fylgdu eingöngu með á prentuðum blöðum. Ekki var hægt að lesa texta af skjá þannig að leikmenn áttu erfitt með að hitta inn í lögin á réttum stöðum.

 

Herbert er einn sá flottasti.