FERÐADISKÓTEK
Formlegar veislur eru ágætar en....

ÓDÝR OG GÓÐ SKEMMTUN. VIRKILEGA FLOTT TILBREYTING.

Það þarf ekki alltaf að kosta mikið að fara út og skemmta sér. Stundum er minna, meira! Hvernig líst þér á furðufataball, hlöðuball, náttfataball eða annað slíkt til að lífga upp á tilveruna?
|
KOMUM OKKUR UPP ÚR FARINU...
Klæðum okkur úr þessu! |
Látið hugmyndaflugið ráða. Nú breytum við til.
|
Lifandi diskótek getur meira...
Við stælum ekki
tónlistina,
við spilum hana orginal.
![]() |
![]() |
![]() |
GÓÐ TILEFNI Í LIT.

það þarf ekkert alltaf að vera dýrt til að vera ofboðslega flott...
Ódýr tilefnisslaus veisla getur verið skemmtilegri en þessi venjulega árlega árshátíð og/eða þorrablót. fYRIR UTAN AÐ ÞETTA ER SVO GAMAN OG GÓÐ TILBREYTING.

Oft fer fólk heim snemma á árshátíðum vegna kostnaðar. Dýrt áfengi flýtir fyrir heimför. Það þarf ekkert að vera svoleiðis. Það er hægt að leigja sali þar sem hver og einn tekur sitt áfengi með sér eða starfsmannafélagið selur það á kostnaðarverði. Það þarf ekki alltaf að halda steikar- eða hlaðborðsveislu þar sem þarf að kaupa heilgalla á eiginmanninn og frúna með öllu tilheyrandi. Það er kreppa og þá skemmtum við okkur í samræmi við það, ekki satt (hmprrf auðvitað ekki... eða...)?
Ef fólk vill, getum við brotið upp dansleikinn og sprellað með fólk í hinum ýmsu leikjum og hringdönsum. Það er mjög gott öðru hvoru að brjóta upp dansinn og sprella smávegis.
Ýmist látum við fólk fara í leiki eða að dansa hópdansa, Macarena, grískan dans, línudans eða bara hvað sem er.
Ef karlarnir standa sig illa fá þeir kannski kennslu í einum erfiðasta dansi sögunnar: Fugladansinum? Við kunnum og getum látið fólk gera ýmislegt skemmtilegt ef fólk er inn á slíku....
.... Sumir vilja ekki slíkt og er það bara gott mál. Sumir láta "Kokkinn" (Hringdans) nægja og enn aðrir eru "Grimmir" í alls konar leikjum. Hér er smá lýsing á einhverju af því sem við höfum verið að gera til að sprella með fólk. Skór kvenfólksins eru fengnir að láni eða slegist er um stóla.
Það vill oft reyna á hjónabandið í "Mólikúl leiknum" þar sem fólk hópast saman en þarf jafnvel að skilja makann útundan eða losa sig við hann/hana og hrista hann/hana af sér til að geta myndað (snögglega) vissa stærð af hópum.
Þú skemmtir þér miklu betur
í flottum búningi og við "Öðruvísi" aðstæður en þessar hefðbundnu árshátíðir. Grískir hópdansar og hringdansar eru afar vinsælir t.d. þegar hópurinn fer í hring og einn og einn skiptist á að dansa break-dans eða jafnvel léttan "súludans" (Kannski ekki). Eins er Conga er alveg ómissandi.
Sum staðar hentar ekki að taka leiki (og ekki allir sem fíla það) og þvíumlíkt og fer það algjörlega eftir óskum hópsins hvort slíkur gjörningur sé framkvæmdur á gestunum eður ei. Eftir miðnætti eru minnkandi þáttökulíkur í leikjum þar sem þá vill fólk fá að dansa... út í eitt.
GÓÐA SKEMMTUN!
ÞAÐ ER ÝMISLEGT SEM HÆGT ER AÐ GERA:
Grímuball,
hattaball,
Hippaskemmtun,
Rocky Horror eða Addams Family,
Star Wars hátíð,
Rómverja, araba og/eða miðalda hátíð,
Country - kúreka hátíð eða/og og indjána festival.
Náttfataball,
Sjóræningjadansleikur,
Disco festival, (Með eða án Village People o.fl.),
17. júní hátíð. Sumardaginn fyrsta skemmtun o.s.frv.
Hawaii hátíð - sólstrandarskemmtun - stuttbuxna/pilsa og/eða strandpartý,
Kóngafólksdansleikur,
Dracula festival,
Steinaldarmanna-dansleikur,
Elvis - Rock N' Roll eða Grease dansleikur,
Munka og nunnu hátíð,
Allir mæta í sérstökum lit af fötum,
Mafíu - gangstera ball.
Gleðikonu og dólga skemmtun?
abba kvöld
Trúðafestival,
Austin Powers skemmtun,
OZ skemmtun og svo frv.
Sieg heil...
Þú skemmtir þér ódýrt í flottum búningi og við "Öðruvísi" aðstæður en þessar hefðbundnu árshátíðir. Grískir hópdansar og hringdansar eru afar vinsælir t.d. þegar hópurinn fer í hring og einn og einn skiptist á að dansa break-dans eða jafnvel léttan "súludans" (Kannski ekki). Eins er Conga er alveg ómissandi.
Sum staðar hentar ekki að taka leiki og þvíumlíkt og fer það algjörlega eftir óskum hópsins hvort slíkur gjörningur sé framkvæmdur á gestunum eður ei. Eftir miðnætti eru minnkandi þáttökulíkur í leikjum þar sem þá vill fólk fá að dansa... út í eitt.
Kíktu á karaoke síðuna okkar. þar er allt um gott karaoke. lagalistarnir eru þar einnig.
![]()
það er alveg bráðnauðsynlegt að vera í búningum þegar góð lög eru sungin.
Það þarf ekki heldur að vera með dýran mat, hlaðborð og steikur. Það er hægt að gera hlutina á eigin vegum. Hér er uppskrift að flottri veislu:
Afhverju ekki bara að leigja sal án vínveitinga og halda "Öðruvísi skemmtun" og panta kínverskan mat, pizzu, hlaðborð eða pottrétt?
Verum í sambandi:
disco
disco.is
554 6666
898 1666