hvað þarf mikið magn af mat í veislum?

Hér er miðað við 2 kg. af kjöti en afar auðvelt er að gera þennan pottrétt þó það þurfi að slumpa á það sem er í honum. Lang best er að nota lambagúllas og/eða nautakjöt. Ef notað er folaldakjöt má ekki hræra mikið í pottréttinum daginn eftir þar sem það á það til að trosna upp. Best er að borða folaldakjöt samdægurs.

AUÐVELDUR POTTRÉTTUR: ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ EYÐILEGGJA HANN T.D. VEGNA VANKUNNÁTTU Í MATSELD.


2. kg. lamba- eða nautagúllas. (Folaldagúllas).

Hvítlaukur eftir behag (Mikinn hvítlauk t.d. ef notað er lambakjöt).

1-2. laukar. Meðal fínt/gróft saxaðir.

2. dósir ananassneiðar. Best er að nota sneiðar og búta þær í litla bita þar sem ananasbitarnir (Chunks) í dósum eru aðeins of stórir. Einnig á að nota allan safann.

2-3 tsk. Indverskt karrý. Jafnvel meira. Ca. 1. tsk. Chilli. (Mikið season all), svartan pipar og salt eftir smekk.

3-4 niðursneiddar paprikur. Mega vera frystar eða úr krukkum.

2. dósir sveppir eða svipað af ferskum sveppum. Niðursneiddir gróft.

2. krukkur af Mango Chutney. Mango Chutney er brúnleitt mauk í glærum krukkum og fæst í öllum matvöruverslunum.


Það sem þú þarft að gera:

Mango Chutney og ananas ásamt fleirrum kryddum  eru aðal bragðefnið.

Laukurinn og kjötið er brúnað á pönnu og kryddað. Síðan má henda öllu útí og láta sjóða og malla í einhvern tíma. Ferska sveppi þarf að brúna. Slökkva undir og láta liggja í safanum. Muna að geyma í kæli yfir nótt. Ef pottrétturinn sekkur ekki í safa má bæta ½ dós af ananasi/ananassafa út í. Það er ekkert verra að vera með ríflegt magn af Mango Chutney í pottréttinum.

Með þessu er skylda að borða hrísgrjón, kartöflusalat og snittubrauð. Mikill vökvi er í pottréttinum sem er afar gott að setja út á hrísgrjónin. Einnig er gott að hafa kartöflustrengi (potato-sticks) í dós ásamt hrásalati með.


 KARTÖFLUSALAT.

Það er skylda að hafa kartöflusalat með ÞESSUM pottrétti:

  • Kartöflur

  • Mayonaise

  • Sýrður rjómi

  • Fínt saxaður laukur

  • Sweet relish

  • Sterkt sinnep

  • 2-3 egg (Má sleppa).

Þetta er gott kartöflusalat með jóla- hamborgarahryggnum

Kartöflusalatið er afar einfalt en með c.a. tveimur kg. af kartöflum fer milli-stærðar dós af Mayonaise (með smá blöndu af sýrðum rjóma) 3-4 stk.  af fínt söxuðum lauk (meðal laukar) og næstum heil krukka af grænu Sweet Relish. Best er að bragða sig áfram með laukinn og relishið (og auðvitað magnið af mayonesinu). Ágætt er að setja smá sinnep útí og aðeins af indversku karrýi. Nóg er að skera flysjaðar meðal-kartöflur  í tvennt eða þrennt í salatið eða í fernt ef þær eru stórar. Þetta salat er eins og pottrétturinn, lang best ef það fær að standa í ísskáp yfir nótt áður en það er borðað. Ef þið viljið, þá er það bragðbætandi að bæta fínt söxuðum eggjum út í. Munið: Mikið af lauk og relish.


Verði ykkur að góðu!

Ekki ruglast á diskótekum. Við lítum öðruvísi út. Sjá einnig neðst á síðunni og undir "Tækin".


Gott er að gera þennan rétt daginn áður. Hann geymist vel og lengi, sérstaklega ef mikið af lauk er notað í hann. Laukurinn er fín rotvörn. Öruggast er að hita hann upp fyrir 60° áður en hann er borinn fram en hann er mjög góður kaldur.


 

 

 

ÞAÐ ÞARF EKKI ALLTAF AÐ VERA "DÝRT" AÐ HALDA T.D. SKEMMTUN EÐA BJÓRKVÖLD...

Hér er uppskrift af góðum Indverskum pottrétti sem er ágætt að gera deginum áður og hita síðan upp áður en gestirnir mæta. Passa verður upp á að geyma hann í kæli yfir nóttina og hita upp undir suðu áður en hann er borðaður.

Munið að bragða ykkur áfram.

indverskur pottréttur:

 

MUNIÐ

  • Til að koma t.d. í veg fyrir matareitrun; Þegar pottrétti er haldið heitum þarf hitastigið að vera yfir 60°C.

  • Bragðið tekur sig betur upp ef rétturinn er geymdur þar til daginn eftir.

  • Aðal bragðefnin í pottréttinum mega ekki klikka en það er Mango Chutney, ananas og karrý.

  • Það drýgir matinn talsvert að vera t.d. með pottrétt sem inniheldur mikið af grænmeti.

  • Má frysta: Ef það verða afgangar af þessum pottrétti þá er fínt að frysta afganginn og skella á pönnuna við gott tækifæri.

Auðvitað fylgja hrísgrjónin með öllum Indverskum réttum

 Hversdags

Þessi pottréttur er frábær ef notað er nautahakk í staðin fyrir gúllas ásamt instant-núðlum (Með beef eða prawn kryddinu í). Eins er gott að setja chillipipar-ávöxt í ótæpilegu magni útí. Allt grænmetið gerir þennan rétt ákaflega drjúgan og er því ódýr kostur í veislur. Þess fyrir utan er ekki til betri pottréttur.

Potato-sticks eru góð með.

 Aðalréttur

MAGN PR. MANN Í VEISLUM:
Kjöt án beina-Vöðvar 125 - 175 gr.
Kjöt með beinum  200 - 300 gr.
Kjöt í pottrétt  130 gr.
Kjöthakk 80 - 100 gr.
Fiskiflök 150 - 200 gr.

Meðlæti

MAGN PR. MANN Í VEISLUM:
Kartöflur 150 - 170 gr.
Grænmeti 100 - 150 gr.
Salat 150 - 180 gr.
Hrísgrjón ½ - 1 dl.
Pasta (Ósoðið) 125 gr.
Súpa 2 - 2½ dl.
Eftirréttur 2 dl.

Fyrst við erum komin í lambakjötið....!

Ó-DOLLÝ! ÆR-LEG STEMNING!

...Þetta er þessi eina sanna Dollý ásamt afkvæminu sínu Bonnie sem líka er klón.

Diskótekið Ó-Dollý! Kind-ir undir fjörinu

554 6666      898 1666     

 discodisco.is