Tónlistin er öll í tölvu. Erum með um og yfir 50.000 lög með okkur og spilum við eftir aldri samsetningu og stemningu hópsins. Á venjulegu balli eru spiluð í mesta lagi 80-100 lög og það þarf kunnáttu til að velja þau. Það þýðir ekkert að vera með tilraunastarfsemi t.d. í brúðkaupum, allt verður að ganga upp frá upphafi til enda.

Við erum ekki fastir í einu né "staðnaðir" í neinu tímabili eins og sumir diskótekarar og útvarpsmenn, bara í diskóinu eða bara í 80's. Við þekkjum alla tónlist og kunnum að spila úr henni. Við erum með allt það nýjasta og alla gömlu tónlistina og allt þar á milli. Eftir áratuga starf og innkaup á tónlist hefur ýmislegt lærst. Við kunnum að lesa fólkið í salnum og erum fljótir að leiðast inn á þær brautir sem þarf.

VIÐ SPILUM ÓSKALÖG.

Án gestanna værum við ekki neitt. Margir diskótekarar vilja halda uppi "sínum stíl" og spila ekki óskalög. Við spilum það sem fólkið biður um. Það er það sem virkar, það spyrst út og fólki líkar það vel.

 

VIÐ KOMUM MEÐ ALLA TÓNLIST, BÆÐI ÞAÐ GAMLA OG ALLT ÞAÐ NÝJASTA.

Við erum með gömlu dansana, öll nýjustu lögin, rólegu lögin, gamla rokkið, diskóið, dinner tónlistina  80's, 90's og allt þar á milli. Í tölvunni eru vinsælustu lögin frá því í kringum 1950 og fram á þennan dag og við getum brugðist við hvaða hópum sem er fyrirvaralaust eins og t.d. endurfundahópum síðustu áratuga... og það sem meira er: Við kunnum það! Það er nefnilega ekki nóg að vera með tónlistina. Það þarf kunnáttu til að spila úr henni.

SKOÐA VINSÆLUSTU LÖGIN Í GEGNUM ÁRIN