FERÐADISKÓTEK
ÞEGAR ÞÚ PANTAR DISKÓTEK ERU NOKKRIR HLUTIR SEM GOTT ER AÐ HAFA Í HUGA.

Hvað ertu að fá fyrir peninginn?
Aðalatriðið: Kemur diskótekarinn með tæki. Ef það er t.d. ekki hljóðkerfi í salnum sem þú leigir, þarftu þá að leigja þér hljóðkerfi fyrir diskótekarann?
Lítur betur út!
Mætir diskótekarinn með eigin græjur og hljóðkerfi? Slíkt getur kostað sama og diskótekarinn. Það er innifalið hjá okkur.
Ef það eru "græjur" í salnum sem þú leigir, eru þær í lagi. Hver segir það? Hefur þú kannað það sjálf/sjálfur? Stundum eru "góðu græjurnar" bara ræðuhátalarar sem eru innfeldir í loftið. Undantekningarlaust eru hljóðkerfin í sölunum sem eru í útleigu ekki nægjanlega góð og oft léleg.
![]()
Stór og góð hljóðkerfi þýða ekki endilega "hávaða". Þau þýða oftast betri hljóm á lægri styrk. Lélegar "litlar" græjur virka oft öfugt.
Þekkir diskótekarinn hvað þinn hópur vill akkúrat? Eða heyrðir þú í honum á einhverjum klúbbnum og fílaðir hann? Veistu hvort hann á tónlistina sem "hinir fíla"?
Allir dansa Conga....!
Veistu nokkuð hvort að viðkomandi hafi hugmynd um hvaða tónlist fólk dansar við og hvaða lög virka?
Hvenær mætir diskótekarinn. Sér hann um tónlistina undir borðhaldi? Sér hann til þess að gestir geti nýtt hljóðkerfið í skemmtiatriði og veislustjórn? Hve marga tíma er hann á staðnum?
Rólegt og fallegt...
Síðan er margt annað sem þarf að huga að. Ekki vera með of stórann sal þannig að t.d. dansgólfi virki alltaf hálftómt þegar allir eru að dansa. Ekki láta þér detta það til hugar að panta sal þar sem er borðað í einum og dansað í öðrum. Sumir halda að tónlist sé ávísun á "dans" en svo er ekki. Diskótekarinn þarf allar forsendur til að hlutirnir gangi upp eins og t.d. gott umhverfi. Það eru nokkrir salir í gangi þar sem engin leið er að halda uppi stemningu, stórt dansgólf, setustofa langt í burtu, bergmál og lélegur hljómur eða að hljómur hverfur í hyldýpi sem hefur verið gert upp yfir dansgólfinu.
Það getur verið sérstaklega erfitt að spila í hliðarsal þegar hópurinn á dansleiknum er mjög blandaður. Á venjulegu balli skiptist fólk inn og út af gólfinu. Diskótekarinn metur gólfið bæði eftir fólkinu sem situr og því sem er að dansa. Í hliðarsal er ekki hægt að sjá hverjir stija í aðalsal. Einn hluti (aldurshópur) í hópnum (segjum t.d. fólk um tvítugt) heldur uppi þvílíkri stemningu að diskótekarinn viðheldur henni óvitandi um hverjir gætu verið að bíða eftir t.d. "gömlu lögunum". Diskótekarinn hefur ekki hugmynd um hvort fólkið sé farið eða hvort það sé að bíða og að lokum stendur það og fellur með "blindum" diskótekaranum hvert ballið stefnir...!
Hljóð er eins og vatn, það fer stystu leið. Þannig er það misskilningur að "hávaði" sé við græjurnar. Mesti hávaðinn getur verið lengst í burtu í enda salarins og síðan enginn hljómur og lítill hávaði á dansgólfinu.
Því miður gerist það allt of oft t.d. í brúðkaupum að ekki er gert ráð fyrir plássi fyrir diskótekið og svo þarf að stilla því upp t.d. á bak við eitt veisluborðið upp við gestina. Þannig situr fólk jafnvel fyrir hátölurunum eða upp við þá og þá er nokkuð ljóst að þar verður "hávaði". Síðan er reynt að vera með skemmtiatriðin og ræðuhöldin við diskótekið beint fyrir framan hátalarana (sem er stranglega bannað) og þá kemur ískur sem kallast "feedback" og er ekki eyrnavænt á nokkurn hátt. Diskótekið þarf sinn stað og hátalararnir þurfa að komast fyrir þannig að þeir snúi að dansgólfi og frítt pláss í kringum þá. Látið þá sem raða salnum upp, vita að það þarf pláss fyrir alla sem að veislunni koma.
VIÐ KUNNUM ÝMISLEGT FYRIR OKKUR.