LIFANDI DISKÓTEK OG SKEMMTILEGIR ENDURFUNDIR... HÆ! EN GAMAN...!

Þrautreyndustu og vinsælustu diskótekararnir á íslandi. Frá 1978 hefur Diskótekið Ó-Dollý! verið í farabroddi ferðadiskóteka og í dag bjóðum við upp á eitt fulkomnasta og flottasta ferðadiskótekið. Gömlu lögin njóta sín vel í nútíma tækninni. Það er "annar" hljómur í dag. Við erum með hljóðkerfi með "bassanum" sem gömlu lögin þurfa.

Rifjið upp Gömlu  lögin og minningarnar

dollý           þá og nú

Spiluðum við ekki á skólaballinu þínu í gamla daga?

ENDURGERUM SKÓLABALLIР EINS OG ÞAÐ VAR Í GAMLA DAGA!

fáðu diskótekara sem hefur upplifað að spila á tímabilinu sem þið ætlið að rifja upp. við þekkjum lögin sem eru "ekki" almennt í spilun frá því í gamla daga.

 

 

Öll tónlist og stemning fyrir alla aldurshópa. Flott og hljómgóð hljóðkerfi. Spilum eftir aldri og stemningu ballgesta.Þegar fyrrverandi skólafélagar hittast til að rifja upp gömul kynni og gamla tíma verða gömlu lögin sem voru hvað vinsælust á dansleikjunum í gamla daga auðvitað að hljóma undir.

Hvað er uppáhaldslagið þitt? Við stillum upp tækjunum áður en gestir mæta til veislu og erum byrjaðir að spila öll "gömlu lögin" sem þið óldust upp við um leið og fólk kemur í salinn.

 

 

LIFANDI DISKÓTEK!

TÓNLISTIN

Tónlistin er öll í tölvu. Erum með um og yfir 50.000 lög með okkur og spilum við eftir aldri samsetningu og stemningu hópsins. Á venjulegu balli eru spiluð í mesta lagi 80-100 lög og það þarf kunnáttu til að velja þau. Það þýðir ekkert að vera með tilraunastarfsemi t.d. á útskriftarböllum, allt verður að ganga upp frá upphafi til enda.

 

"Gömlu lögin" eru ekki það sama og gömlu lögin. Við stúderum hvert einasta ball og pössum upp á að það séu "rétt lög" sem eru spiluð. Fyrir utan að sum tónlist t.d. frá 70's tímabilinu hefur oft verið endurupptekin með skelfilegum árangri. Við pössum okkur að spila réttu útgáfurnar.

 

Víðistaðaskóli "Fyrri ára" í góðum gír. Útskrift 1989 úr Víðistaðaskóla.

Útskrift 1984 úr viðskiptadeild Háskólan. Nemendur og kennarar skemmta sér greinilega vel í karaoke-inu.

Dollý á balli í Garðinum í kringum 1986.

 

 

 

 Skólaball í Hlégarði í kringum 1985.

 Á Re-Union er algjört MUST:

að spila gömlu lögin. Við undirbúum okkur sérstaklega vel fyrir útskriftaböll. Fyrir daga netsins sátum við tímum saman inn á þjóðskjalasafni og söfnuðum upplýsingum um tónlistina sem var í gangi áratugum áður svo það væri á hreinu hvernig böllin voru á þeim tíma sem hópurinn var saman í skóla. Síðan hófst þrautarganga að komast yfir tónlistina sem oftar en ekki var ófáanleg, en með aðstoð ýmissa vina, fyrirtækjs og stofnanna tókst að lokum að eignast tónlistina.

Núna er undirbúningurinn minni, sérstaklega fyrir þessa undirbúningsvinnu sem við búum ennþá að og fyrir það að við búum að reynslu í tónlistarflutningi sem spannar síðustu 40 ár. Núna erum við gangandi gagnabanki sem kunnum, getum og þorum. Ekki sætta þig við neitt minna en ballið eins og það var nákvæmlega þegar þið útskrifuðust.

 

Við eigum vinsælustu löginn alla leið til fyrir 1950 og það sem meira er, við kunnum að spila úr þeim!

Núna er plötusafnið okkar orðið nokkuð stórt og mikið. Þess fyrir utan eru öll gömlu lögin frá áratugunum áður en Dollý var stofnað í safninu. Við gætum hafa spilað á skólaballinu þínu í gamla daga? Kannski rokkið og diskóið á áttunda áratugnum. Diskóið, Wham, Michael Jackson, Duran og 80's tónlistina á níunda áratugnum? 

Láttu okkur endurskapa dansleikinn nákvæmlega eins og hann var í gamla daga. Ekki sætta ykkur við einhverja milli tónlist sem minnir á eitthvað allt annað en stemmningin segir til um. Það er hefð fyrir því t.d. í Keflavík o.fl. stöðum að hittast á 15. ára fermingarafmæli sínu.

Fagnaðarfundir eru mikilir og frá miklu að segja frá í gleði og sorg "eftir-fermingaáranna" til dagsins í dag. Það er virkilega gaman að hitta gömlu félagana og stundum örlar á uppgjöri og fyrirgefningu vegna gamalla atvika.

Stundum eru þessi tímamót upphaf að enn lengri og nánari kynnum. Gætirðu ímyndað þér endur-kynnin án skreytinga með gömlu lögunum sem voru hvað vinsælust í gamla daga?

Hér voru allir listar yfir lög síðustu hálfrar aldar. Við höfum tekið út allt varðandi vinsælustu lögin og hljómsveitirnar. Við erum vissulega miklir viskubrunnar en til hvers að vinna fyrir keppinautana við að búa til play-lista fyrir þá.

Það er alveg nóg að þeir cópý-peista heimasíðuna okkar, myndirnar okkar og ýmsar aðrar upplýsingar svo við séum nú ekki líka að kenna þeim spileríið. Við eigum öll þessi lög og kunnum að spila úr þeim.

Nefndu það... við spilum það  

Reifið, rokkið rappið og hipp hoppið á þeim tíunda? Dance, R & B og rapp o.sfrv. á fyrsta áratug þessarrar aldar? Það er ekki nóg að eiga lögin! Það þarf að kunna að spila úr þeim. Áratuga reynsla hefur kennt okkur ýmislegt. Þess fyrir utan að það þarf tæki... sorry... almennileg tæki til að halda út kvöldið.

Stundum eru þessi tímamót upphaf að enn lengri og nánari kynnum. Gætirðu ímyndað þér endur-kynnin án skreytinga með gömlu lögunum sem voru hvað vinsælust í gamla daga?

        

Lögin "ykkar" sem voru nákvæmlega hvað vinsælust þegar þið voruð í skóla hljóma undir frá því þið stígið í salinn og þangað til ballinu lýkur...

 Láttu okkur endurskapa stemninguna og ballið eins og í "gamla daga" í gamla skólanum ykkar. Oftar en ekki eru það lögin frá 3-4 árum áður en hópurinn útskrifaðist sem eru best geymd í minningunni.

 

 

Núna, þennan veturinn eru hópar sem útskrifuðust 1960-61, 1965-66, 1970-71, 1975-76, 1980-81, 1985-86, 1990-91, 1995-96, 2000-2001 og 2005-2006 að hittast. Stundum eru árgangar sitthvorumegin við hafðir með þar sem oft var samgangur á milli árganga í skólum, sérstaklega úti á landi.

 

VIÐ VORUM ÚT UM ALLT

Í gamladaga vorum við á skólaböllum um allan bæ og klúbbnum 1980-1981. Stóran hluta af áratugnum frá '70-'80 í Æskó í Hafnarfirði (Ljónið 1975-1979) Sigtúni 1981-1982. Glæsibæ 1981. Leikhúskjallaranum 1980-1982 og þannig mætti lengi telja. Seinna t.d. í Ingólfscafé o.fl. Hollywood 1982-1985.

Sérfræðingarnir í diskóinu eru semsagt hér!!!!

 

 

MIKLU MEIRA EN "BARA DISKÓTEK"

 

 

Skólaárin rifjuð upp í tali, tónum og myndum.

 

MINNINGARNAR FESTAR Á FILMU

Útskrift 1959 úr lækjarskóla skemmtu sér vel með tónlistinni "Sem þau ólust upp með" frá 1950-1960.

   

Við höfum alltaf keypt nýjustu lögin á hverjum tíma sem þýðir að við eigum "þau" öll. Við höfum starfað í 32 ár og alltaf keypt nýjustu lögin sem voru hvað vinsælust þá, ásamt lögunum sem voru hvað vinsælust áratugina þar á undan.

 

Þannig eigum öll gömlu lögin og það sem er hvað mikilvægast: "ORGINAL" upptökurnar af lögunum. Ekki misheppnaðar endurupptökur.

Hvaða tímabil skyldi þessi skrautlegi hópur vera að rifja upp hér?

 

 

Verum í sambandi:    

       

discodisco.is              554 6666                898 1666